Vaktsími presta: 893-5900
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Fréttasafn
Jólasöngstund í Akraneskirkju miðvikudaga kl. 17:15
Finnst þér gaman að syngja jólalögin? Hvert er þitt uppáhald? Komdu í Akraneskirkju miðvikudaginn 4. desember kl. 17:15 og syngdu með okkur! Bjart er yfir Betlehem, Snjókorn falla, Forðum í bænum Betlehem, Hvít jól, Hátíð í bæ... og fleiri og fleiri. Jólasöngur alla miðvikudaga á aðventunni í Akraneskirkju kl. 17:15. Hilmar Örn leikur undir og félagar úr Kór Akraneskirkju leiða sönginn. Dásamleg samverustund fyrir alla í fjölskyldunni. Komdu og syngdu með!
Fyrsti sunnudagur í aðventu: aðventuhátíð í Akraneskirkju kl. 20
Sjá, hjálpræði þitt kemur (Jes 62.11) Við kveikjum einu kerti á. Hans koma nálgast fer sem fyrstu jól í jötu lá og Jesúbarnið er. Sunnudagaskóli og aðventugarður Á fyrsta sunnudegi í aðventu er hefðbundinn sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11. Jóhanna og Alda Björk taka fagnandi á móti börnum og fullorðnum. Söngur, biblíusaga og fleira. Að loknum sunnudagaskóla kl. 11:30 breiðum við út birtuna í aðventugarðinum í Vinaminni, þar sem Angela Árnadóttir og Benedikt Kristjánsson [...]
Sorgin og jólin – samvera í Akraneskirkju 2. desember kl. 20
Mánudagur 2. desember kl. 20: Erindi um jólahald í skugga áfalla, sorgar og missis. Jólin eru tími hátíðar og gleði, tími samverustunda fjölskyldunnar þar sem nýjar minningar verða til. Jólin og aðventan reynast sumum erfiður tími, einkum í kjölfar breyttra aðstæðna, til dæmis eftir ástvinamissi eða önnur þung áföll. Ólöf Margrét Snorradóttir og Þráinn Haraldsson fjalla um sorg og sorgarviðbrögð og ýmis bjargráð sem nýst geta syrgjendum. Tendrum ljós í minningu látinna ástvina. Verið [...]
Keðjusöngur með hreyfingu, heilastuð og stemmning! Opið hús miðvikudaginn 27. nóvember kl. 13:15
Það er alltaf gaman þegar Hildur A. Ingadóttir sjúkraþjálfi kemur í Opna húsið í Vinaminni og engin undantekning verður á því miðvikudaginn 27. nóvember kl. 13:15 þegar hún kemur til okkar. Við fáum ekkert að sitja aðgerðarlaus því Hildur ætlar að kenna okkur styrkjandi æfingar fyrir líkama og ekki síður hugann. Eins og hún segir sjálf verður keðjusöngur með hreyfingu, heilastuð og stemmning! á dagskránni í Opnu húsi í Vinaminni. Þá lumar hún einnig [...]
Sunnudagur 24. nóvember – sunnudagaskóli og kvöldmessa í Akraneskirkju
Sunnudagurinn 24. nóvember er síðasti sunnudagur kirkjuársins, það er sunnudagurinn áður en jólafastan hefst. Sunnudagaskóli kl. 11 í Akraneskirkju. Alda Björk og Jóhanna Elísa taka á móti kátum krökkum, söngur og biblíusaga á sínum stað og börnin fá límmiða í bókina sína. Kl. 20 er kvöldmessa í Akraneskirkju. Sr. Anna Eiríksdóttir þjónar. Kór Akraneskirkju leiðir söng, organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Verið velkomin til kirkju!
Jólamarkaður Innra – Hólmskirkju í Miðgarði laugardaginn 30. nóvember og sunnudaginn 1. desember
Jólamarkaður Innra - Hólmskirkju í Miðgarði laugardaginn 30. nóvember og sunnudaginn 1. desember. Ágóðinn af markaðnum fer til góðra verka fyrir Innra - Hólmskirkju.
Jólaljósin kveikt í Kirkjugarði Akraness og Innra-Hólmskirkjugarði
Lionsklúbbur Akraness sér um að setja upp jólaljósin í Kirkjugarði Akraness og Innra-Hólmskirkjugarði. Lionsmenn verða með afgreiðsluna í vinnuskúrnum í Kirkjugarði Akraness dagana 30. nóvember, 1 desember og 7. desember Leiðisljósin verða afgreidd í Kirkjugarðinum á Akranesi sem hér segir, laugardaginn 30. nóv. kl. 11-15:30, sunnud. 1. des. kl. 13-15:30 og laugard. 7. des. kl. 13-15:30 ATHUGIÐ! Afgreiðsla er í vinnuskúr í kirkjugarðinum. Aðilar sem óska eftir ljós á leiði í Innra-Hólmskirkjugarði, vinsamlegast hafa [...]
Æðruleysismessa 17. nóvember kl. 20
Akraneskirkja sunnudaginn 17. nóvember Sunnudagaskóli kl. 11 Söngur og sögur að vanda, heyrum m.a. um fugla himins sem aldrei hafa áhyggjur. Börnin fá að sjálfsögðu límmiða í bókina sína. Æðruleysismessa kl. 20 Vitnisburður frá AA-félaga. Tónlistarkonan GDRN, Guðrún Ýr Eyfjörð, syngur nokkur af sínum lögum ásamt stúlkum úr Kór Grundaskóla, kórstjóri er Lilja Margrét Riedel. Kór Akraneskirkju leiðir almennan söng, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Andri Freyr Hilmarsson leikur á bassa og Matthías Eyfjörð á [...]
Opið hús 13. nóvember: Kynlegt stríð
Miðvikudaginn 13. nóvember er Opið hús í Vinaminni kl. 13:15. Gestur okkar er Bára Baldursdóttir sagnfræðingur, sem hefur um árabil rannsakað samneyti íslenskra kvenna og hermanna. Í fyrra sendi hún frá sér bókina Kynlegt stríð - Ástandið í nýju ljósi sem fjallar um þetta efni og einkum sögu þeirra stúlkna sem vistaðar voru á hæli á Kleppjárnsreykjum á stríðsárunum. Alla miðvikudaga er kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 og súpa í Vinaminni á eftir. Verið velkomin!
Sunnudagur 10. nóvember
Sunnudaginn 10. nóvember er fjölskylduguðsþjónusta og sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11. sr. Þráinn leiðir stundina ásamt Öldu og Jóhönnu Elísu. Söngur, biblíusaga og leikir, góð fjölskyldustund í kirkjunni. Kl. 20 er svo Kvöldmessa í Innra-Hólmskirkju. Sr. Þráinn Haraldsson þjónar, Zsuzsanna Buadi leikur á orgel og Kór Saurbæjarprestakalls syngur. Heitt á könunni eftir messu.
Miðvikudagur 6. nóvember: Jón Gnarr gestur í Karlakaffi
Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 - andleg og líkamleg næring alla miðvikudaga Ritningarlestur og bæn ásamt ljúfum orgeltónum. Súpa í Vinaminni á eftir, kr. 1000. Verið velkomin að njóta kyrrðar og eiga svo nærandi samfélag yfir súpu og spjalli. Karlakaffi kl. 13:15 - spjallað við Jón Gnarr Gestur karlakaffis í nóvember er Jón Gnarr sem flestum er kunnugur Í karlakaffi fáum við góða gesti í heimsókn sem segja frá starfi sínu, áhugamáli eða miðla [...]
Allra heilagra messa – látinna minnst
Sunnudaginn 3. nóvember, er Allra heilagra messa í kirkjum landsins. Á þeim degi minnumst við látinna ástvina og heiðrum minningu þeirra sem hafa kvatt okkur síðastliðið ár. Við hátíðarmessu kl. 20 í Akraneskirkju verða lesin nöfn þeirra sem voru jarðsungin í Garða- og Saurbæjarprestakalli frá Allra heilagra messu árið 2023. Einnig verða tendruð kertaljós til minningar um látna ástvini. Kammerkór Akraneskirkju leiðir söng. Einsöng syngur Bjarni Atlason. Organisti Hilmar Örn Agnarsson, konur úr Kirkjunefnd [...]