Þá er komið að næsta viðburði hjá Kalman listafélagi en það verður söngskemmtun með Diddú og Jónasi Þóri í Vinaminni fimmtudaginn  23. mars kl. 20.

Yfirskrift söngskemmunarinnar er ,,Úr ýmsum áttum – eitthvað fyrir alla” en Diddú og Jónas hafa starfað saman á vængjum söngsins í rúm 50 ár! Þau kynntust fyrst í Vesturbænum og voru samtíða í Melaskóla og síðar Hagaskóla. Þar smullu þau strax saman músíklega og hafa átt sérlega farsælt samtarf við ótæmandi uppákomur í gegnum tíðina.

Miðaverð er kr 3.000 fyrir Kalmansvini og miðasalan sem fyrr við innganginn. Boðið verður upp á kaffi og konfekt í hléi.