Home2023-01-05T21:45:34+00:00
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna
Vaktsími presta: 893-5900

Hallgrímskirkja í Saurbæ

Leirárkirkja
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Viðburðir framundan
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Ýmislegt

Fréttasafn

Aðventuhátíðir Garða- og Saurbæjarprestakalls

Þriðja sunnudag í aðventu, 11. desember verða aðventuhátíðir í prestakallinu. Aðventuhátíð barnanna verður haldið í Akraneskirkju kl. 11. Þar mun Kór Grundaskóla syngja, við munum heyra jólasögu og syngja saman jólalög. Notaleg stund fyrir alla fjölskylduna. Um kvöldið er aðventuhátíð í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Þar mun Kór Saurbæjarprestakalls flytja nokkur lög ásamt einsöngvurum úr kórnum. Ólafur Sverrisson er ræðumaður kvöldsins, hann hefur mikla tengingu við Hvalfjörðin og er formaður sumarbúðana í Vatnaskógi.  

7. desember, 2022|

Opið hús 7. desember kl. 13:15

Ég kemst í hátíðarskap - jólastund í opnu húsi í Vinaminni 7. desember kl. 13:15 Söngur, jólasaga og góð samvera. Jólakaffi í lok stundar Sérstakir gestir eru Kristín Steinsdóttir og Helga Möller. Kristín segir frá bókum sínum og Helga Möller syngur jólalögin af sinni alkunnu snilld. Verið velkomin á jólastund í Vinaminni!

5. desember, 2022|

Sorgin og jólin – samvera í Vinaminni 5. desember kl. 20

Aðventa og jól eru tími tilhlökkunar og gleði en þau geta líka verið erfiður tími, sérstaklega fyrir þau sem hafa misst ástvin eða upplifað miklar breytingar á sínum högum. Sorgin og söknuðurinn verða áleitnari á þessum tíma gleði og samfunda fjölskyldunnar og minningarnar sækja á. Hvernig getum við brugðist við og hlúð að minningunum og okkur sjálfum? Við bjóðum til samveru um sorg og missi í nánd jólahátíðar í Vinaminni, 5. desember kl. 20. Erindi [...]

30. nóvember, 2022|

Helgihald um aðventu og jól

4. desember - Jólaball sunnudagaskólans kl.11 í Vinaminni 5. desember - Sorgin og jólin. Samvera kl. 20 í Vinaminni 7. desember - Opið hús kl. 13.15 í Vinaminni. Jólastund með Helgu Möller og Kristínu Steinsdóttur 11. desember - Aðventuhátíð barnanna kl. 11 í Akraneskirkju Aðventuhátíð í Hallgrímskirkju í Saurbæ kl. 20 15. desember - Jólatónleikar Kirkjukórs Akraneskirkju í Akraneskirkju kl. 19.30 18. desember - Jólasöngvar kl. 11 í Akraneskirkju. Diddú og drengirnir verða með [...]

29. nóvember, 2022|

Karlakaffi 30. nóvember kl. 13:30

Í karlakaffi fáum við góða gesti í heimsókn sem segja frá starfi sínu, áhugamáli eða miðla öðrum fróðleik. Þetta er vettvangur fyrir herramennina að hittast þar sem er fræðsla og skemmtun og tækifæri til að spjalla. Einu sinni í mánuði í Safnaðarheimilinu Vinaminni klukkan 13:30. Gestur í karlakaffinu 30. nóvember er Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóri. Segir hann frá starfi sínu og kannski nýjum lyftubíl slökkviliðsins. Kaffi að hætti hússins á eftir. Velkominn í karlakaffi!

28. nóvember, 2022|

Syngið Drottni nýjan söng – ný Sálmabók

Á dögunum kom út ný Sálmabók íslensku kirkjunnar, en að henni hefur verið unnið undanfarin ár. Er það sálmanefnd á vegum Biskupsstofu sem á veg og vanda að söfnun sálmanna og uppröðun sem og að afla tilskilinna leyfa höfunda og handhafa höfundarrétta. Sálmarnir eru 795 talsins, margir þeirra hafa verið í eldri útgáfum sálmabókarinnar en þó nokkuð er um nýja sálma, eftir íslenska höfunda, eða íslensk þýðing við erlent lag líkt og í eldri [...]

27. nóvember, 2022|

Ljósakrossar í Kirkjugarði Akraness

Eins og áður verður Lionsklúbbur Akraness með útleigu á ljósakrossum í kirkjugarðinum, nú í byrjun aðventunnar.  Við verðum í garðinum á eftirtöldum dögum:  laugardaginn 26.nóvember kl. 11.00.- 15.30.  sunnudaginn 27.nóvember kl. 13.00.- 15.30., og laugardaginn 3.desember kl. 13.00.- 15.30. Við höfum lengi styrkt Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi með tækjagjöfum og munum við að sjálfsögðu halda því áfram.  Í fyrra afhentum við tæki að verðmæti kr. 3.707.000.-  nú í ár munum við afhenda tæki að [...]

26. nóvember, 2022|

Æðruleysismessa á fyrsta sunnudag í aðventu

Sunnudagurinn 27. nóvember er fyrsti sunnudagur í aðventu. Í Akraneskirkju verður haldin æðruleysismessa kl. 20. Í messunni beinum við sjónum okkar að æðruleysinu og æðruleysisbæninni og ekki síður hvað það er að vera ljós í lífi annara. Félagi úr AA á Akranesi mun segja reynslusögu. Lítill hópur úr Kór Akraneskirkju syngur undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar og Magga Stína syngur einsöng. sr. Þráinn Haraldsson leiðir stundina. Kirkjan verður hálfrökkvuð og þetta er gott tækifæri [...]

25. nóvember, 2022|

Kalman – listafélag og Dúó Stemma halda fjölskyldutónleika í Vinaminni 27. nóvember kl. 14.

Kalman - listafélag heldur fjölskyldutónleika í Vinaminni á fyrsta sunnudegi í aðventu, 27. nóvember nk. sem hefjast kl. 14.   Tvíeykið og gleðipinnarnir í Dúó Stemmu, þau Herdís Anna og Steef, bregða á leik og flytja vetrarskemmdegisdagskrá með jólalegu ívafi fyrir alla fjölskylduna. Þau munu leika sér með íslensk þjóðlög, fara með þulur og sögð verður hljóðsaga um vináttuna með hjálp allskyns hljóðfæra og hljóðgjafa m.a. víólu, tromma, sandpappírs og hrossakjálka. Steinaspil Páls á Húsafelli [...]

24. nóvember, 2022|

Bingó í opnu húsi í dag kl. 13:15

Opið hús í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15 Í dag spilum við bingó - Skemmtilegir vinningar í boði kostar 500 kr þátttakan! Pétur Jóhannesson stýrir bingóinu. Umsjón með opnu húsi hefur Ólöf Margrét Kaffi að hætti hússins á eftir Verið velkomin!

23. nóvember, 2022|

Ný sálmabók tekin í notkun í guðsþjónustum 20. nóvember

Sunnudagur 20. nóvember Hallgrímskirkja í Saurbæ Guðsþjónusta kl. 11 - ný sálmabók tekin í notkun. Kór Saurbæjarprestakalls syngur, organisti Zsuzsanna Budai. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Meðhjálpari Ágústa Björg Kristjánsdóttir. Akraneskirkja Sunnudagaskóli kl. 11 Guðsþjónusta kl. 20 - ný sálmabók tekin í notkun. Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Meðhjálpari Fjóla Lúðvíksdóttir.

17. nóvember, 2022|

Vel heppnað kirkjunámskeið fyrir börn í Hvalfjarðarsveit

Síðastliðinn fimmtudag var börnum í Hvalfjarðarsveit á aldrinum 6-12 ára boðið á kirkjunámskeið í Vatnaskóg. Á námskeiðinu fengu börnin fræðslu um kirkjuna og starfið í Vatnaskógi. Einnig var farið í göngutúr um skóginn, hlustað á sögur, hoppað í hoppuköstulum og leikið í hinum ýmsum leikjum og tækjum í íþróttahúsi Vatnaskógar. Og ekki má gleyma dýrindis kökunni í kaffitímanum og pítsunni um kvöldið. Námskeiðið heppnaðist vel og það var einstaklega skemmtilegt að fá að kynnast [...]

14. nóvember, 2022|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top