Home2023-01-05T21:45:34+00:00
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna
Vaktsími presta: 893-5900

Hallgrímskirkja í Saurbæ

Leirárkirkja
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Viðburðir framundan
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Allt helgihald framundan

Fréttasafn

Hallgrímshátíð í Saurbæ – dagskrá 26. og 27. október

Í ár er þess minnt að 350 ár eru liðin frá andláti Hallgríms Péturssonar, prests og sálmaskálds. Vegleg Hallgrímshátíð verður í Hallgrímskirkju í Saurbæ næstkomandi helgi, tónleikar á laugardag og hátíðarmessa á sunnudag ásamt sérstakri hátíðardagskrá Laugardagur 26. október kl 16: Kórtónleikar - Hallgrímsfléttu Kór Breiðholtskirkju flytur kórverk sem tengjast kveðskap Hallgríms Péturssonar. Stjórnandi er Örn Magnússon. Á efnisskrá eru verk eftir Orlando di Lasso, Knut Nystedt, Sergei Rachmaninoff, Þorkel Sigurbjörnsson, Steingrím Þórhallsson og [...]

21. október, 2024|

Kyrrðarstund og Opið hús miðvikudaginn 23. október

Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir er gestur okkar í Opnu húsi í Vinaminni, miðvikudaginn 23. október. Dagskráin hefst kl. 13:15. Sr. Auður Eir var vígð til prests við Þjóðkirkjuna þann 29. september 1974 og var fyrsta konan hérlendis til að hljóta prestsvígslu. Hún er frumkvöðull á sviði kvennaguðfræði og stofnaði á sínum tíma Kvennakirkjuna. Hún hefur einnig gefið út nokkrar bækur um kvennaguðfræði. Kaffi og bleik kaka í lok samveru. Kyrrðarstund er í Akraneskirkju alla  [...]

21. október, 2024|

Bleik messa sunnudaginn 20. október kl. 20

Sjúkur [var ég] og þér vitjuðuð mín (Matt 25.35) Sunnudagurinn 20. október er dagur heilbrigðisþjónustunnar en þá verður einnig hin árlega Bleika messa í Akraneskirkju kl. 20. Fyllum kirkjuna af gleði og von með kraftmiklum söng, ávarpi og bænum. Bleika messan er haldin í samstarfi við Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis til að sýna samhug og samstöðu með öllum konum sem greinst hafa með krabbamein, en bleiki liturinn er tákn þeirrar stamstöðu og stuðnings. Sýnum [...]

16. október, 2024|

Minningarstund þriðjudaginn 15. október

15. október er ár hvert tileinkaður minningur þeirra barna sem létust í móðurkviði, í eða eftir fæðingu. Þennan dag er haldin minningarstund í Akraneskirkju kl. 20 í samvinnu við félagið Englaforeldra á Akranesi. sr. Þráinn Haraldsson leiðir stundina og Guðrún Árný syngur. Á stundinni minnumst við allra þeirra barna sem hafa látist í móðurkviði, í eða eftir fæðingu og þannig heiðrum við minningu þeirra barna sem tilheyra hjörtum okkar. Stundin er öllum opin, hvort [...]

14. október, 2024|

Akraneskirkja sunnudaginn 13. október

Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón Öldu Bjarkar. Biblíusaga og söngur, börnin fá einnig límmiða í sunnudagaskólabókina sína. Kvöldmessa kl. 20. Sr Anna Eiríksdóttir þjónar fyrir altari og verður með skírnarminningu. Kór Akraneskirkju leiðir söng, organisti Hilmar Örn Agnarssona, meðhjálpari Fjóla Lúðvíksdóttir  

9. október, 2024|

Helgihald í október

Helgihald prestakallsins í október er fjölbreytt, bleika messan á sínum stað og einnig verður minnst 350 ára ártíðar Hallgríms Péturssonar í Hallgrímskirkju í Saurbæ Velkomin til messu! Sunnudagur 6. október Akraneskirkja Fjölskyldumessa kl. 11 Sunnudagur 13. október Akraneskirkja Sunnudagaskóli kl. 11 Kvöldmessa kl. 20 Sunnudagur 20. október Akraneskirkja Sunnudagaskóli í vetrarleyfi Kvöldmessa kl. 20 - Bleik messa Hjúkrunarheimilið Höfði Guðsþjónusta kl. 17:15 Sunnudagur 27. október Akraneskirkja Sunnudagaskóli kl. 11 Kvöldmessa kl. 20 Hallgrímskirkja í [...]

9. október, 2024|

Fjölskyldumessa í Akraneskirkju – sunnudaginn 6. október kl. 11

Jesús sagði: „Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða.“ Sunnudaginn 6. október kl. 11 er fjölskyldumessa í Akraneskirkju. Bænin er aðalumfjöllunarefnið en auk þess að biðja verður sungið af hjartans lyst.  Biblíusaga um Jesú og bænina og börnin fá límmiða í bókina sína. Jóhanna Elísa og Ólöf Margrét leiða messuna. Verið hjartanlega velkomin til kirkju!

3. október, 2024|

Karlakaffi 2. október – Myndir frá Akranesi

Miðvikudaginn 2. október er fyrsta Karlakaffi vetrarins en þar verður brugðið upp gömlum ljósmyndum frá Akranesi. Sr Þráinn sér um stundina ásamt Hilmari Erni organista. Spjall, ásamt kaffi og köku í lokin. Kr. 1000.   Kyrrðarstund í Akraneskirkju alla miðvikudaga kl. 12:10 og súpa í Vinaminni á eftir. Súpa kr. 1000.

1. október, 2024|

Barna- og æskulýðsstarf í Vinaminni

Vetrarstarfið er komið á fullt skrið í Akraneskirkju og barna- og æskulýðsstarfið hefur farið vel af stað. Sunnudagaskóli er alla sunnudaga kl. 11 í umsjá Öldu Bjarkar, þar er sungið og sögð biblíusaga auk þess sem  börnin fá límmiða í bókina sína. Alla mánudaga er barnastarf í Vinaminni, umsjón hefur Ása Kolbrún ásamt ungleiðtogum. Fyrsti hópurinn er kl. 16:15  og er það aldurinn 6-8 ára eða 1.-3. bekkur. 5.-7. bekkur eða 9-12 starfið hefst [...]

30. september, 2024|

Sunnudagur 29. október – fjölbreytt helgihald

Það er fjölbreytt helgihald í kirkjum prestakallsins sunnudaginn 29. september. Í Akraneskirkju er sunnudagaskóli kl. 11. Þar mun Alda Björk leiða stundina með söng, leik og biblíusögu. Sunnudagaskólinn er frábært fjölskyldustund fyrir börn á leikskólaaldri og yngstu bekkjum grunnskólans með foreldrum sínum og fjölskyldu. Í vetur safna börnin límmiðum í sunnudagskólabók sem allir fá að gjöf. Um kvöldið er svo kvöldmessa í Akraneskirkju kl. 20. Þráinn Haraldsson sóknarprestur þjónar fyrir altari og predikar, Hilmar [...]

27. september, 2024|

Sunnudagur 15. september í Akraneskirkju

Jesús Kristur afmáði dauðann, en leiddi í ljós líf og óforgengileika með fagnaðarerindinu (2.Tím 1. 10b). Sunnudagaskóli kl. 11 Alda Björk leiðir sunnudagaskólann, söngur og sögur, börnin fá límmiða í bókina sína. Við hlökkum til að sjá ykkur í sunnudagaskólanum. Kvöldmessa kl. 20 Hilmar Örn organisti og kórinn syngur ljúfa sálma. Sr Ólöf Margrét þjónar Verið velkomin i endurnærandi samveru í helgarlok.  Hjúkrunarheimilið Höfði Guðsþjónusta kl. 17:15

13. september, 2024|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top