Vaktsími presta: 893-5900
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Fréttasafn
Dymbilvika og páskar
Gegnum Jesú helgast hjarta í himininn upp ég líta má, Guðs míns ástar birtu bjarta bæði fæ ég að reyna' og sjá. Hryggðarmyrkrið sorgar svarta sálu minni hverfur þá. (Hallgrímur Pétursson, Passíusálmur nr 48) Fjölbreytt dagskrá er í Hallgrímskirkju í Saurbæ og Akraneskirkju í dymbilviku og um páska, svo sem tónleikar, lestur Passíusálma, helgistundir og messur. Verið velkomin til kirkju! Þriðjudagur 26. mars Sungið með Hallgrími og samtímanum kl. 20. Sálmakvöld í Hallgrímskirkju í [...]
Frá Betaníu til Emmaus – dagskrá í Hallgrímskirkju í Saurbæ í dymbilviku og páskum
Dymbilvika og páskar í Saurbæ Velkomin til kirkju! Eins og undanfarin ár verður dagskrá alla daga frá pálmasunnudegi til annars páskadags undir yfirskriftinni: Frá Betaníu til Emmaus. Dagskráin rekur söguna frá því að María smurði fætur Jesú í Betaníu þar til hann birtist lærisveinunum upprisinn í Emmaus. Pálmasunnudagur 24.mars kl 18.00 Íhugun um smurninguna í Betaníu. Mánudagur í dymbilviku 25.mars. Boðunardagur Maríu Kl. 18.00 Íhugun um iðrun og fyrirgefningu. Þriðjudagur í dymbilviku 26.mars.Heitdagur Kl [...]
Sálmakvöld í Hallgrímskirkju í Saurbæ með Sálmabandi Dómkirkjunnar 26. mars kl. 20
Sungið með Hallgrími og samtímanum Þriðjudagur í dymbilviku, 26. mars 2024 kl. 20.00 í Hallgrímskirkju í Saurbæ Allir eru hjartanlega velkomnir að koma og kynnast og syngja saman sálma við texta Hallgríms Péturssonar og nýja sálma úr hinni nýútkomnu sálmabók kirkjunnar. Kór Saurbæjarprestakalls leiðir sönginn styrkum röddum. Sálmaband Dómkirkjunnar er skipað kórfélögum Dómkórsins í Reykjavík: Ása Bríem, harmonikka, Jón Ívars, gítar, Sigmundur Sigurðarson, gítar, Thelma Rós Sigfúsdóttir, víóla og Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur leikur á kontrabassa. Sálmabandið hefur leikið [...]
Fermingarmessur í Akraneskirkju 23. og 24. mars
Lát þennan dag, vor Drottinn, nú oss dýran ávöxt færa. (Valdimar Briem, Sb 358) Fyrstu fermingar vorsins verða í Akraneskirkju laugardaginn 23. mars og á pálmasunnudag 24. mars, tvær athafnir eru hvorn dag, kl. 10:30 og 13:30. Laugardagur 23. mars kl. 10:30: Aníta Rut Andradóttir Árný Lea Grímsdóttir Elía Valdís Elíasdóttir Elmar Gísli Ólafsson Elsa Dís Hjaltadóttir Hekla Dís Hilmarsdóttir Helgi Guðsteinn Reynisson Ísey Fannarsdóttir Jökull Stefnisson Lilja Fanney Ársælsdóttir Nadía Steinunn Elíasdóttir Styrmir [...]
Opið hús í Vinaminni 20. mars
Góðir gestir frá Bústaðarkirkju koma í heimsókn í Opna húsið í Vinaminni miðvikudaginn 20. mars kl. 13:15. Hólmfríður Ólafsdóttir djákni í Bústaðakirkju kemur með hópinn sinn úr opna húsinu þar. Steini Dúmbó og Hilmar fara á kostum eins og þeim er lagið. Söngur, sögur og önnur skemmtun ásamt veglegu kaffiborði. Verið velkomin! Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 alla miðvikudaga og súpa í Vinaminni á eftir.
Helgiganga og blá messa 17. mars
Sunnudaginn 17 mars er fjölbreytt dagskrá í prestakallinu. Í Akraneskirkju er sunnudagaskóli kl. 11 þar Jóhanna Elísa tekur á móti börnum og fullorðnum með söng og biblíusögu. Á sama tíma er helgiganga frá Hallgrímskirkju í Saurbæ. Gengin verður stutt vegalengd frá kirkjunni, stoppað á nokkrum stöðum þar þættir úr píslarsögunni verða lesnir og hugleiddir. Gangan er auðvelt og við flestra hæfi. sr. Þráinn Haraldsson leiðir gönguna. Um kvöldið er kvöldmessa í Akraneskirkju kl. 20, [...]
Sunnudagur 10. mars
Ég er hið lifandi brauð sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði mun lifa að eilífu. Og brauðið er líkami minn sem ég gef heiminum til lífs.“ Jóh. 6.51 Helgihald í Garða- og Saurbæjarprestakalli fjórða sunnudag í föstu: Akraneskirkja Fjölskyldumessa kl. 11 - sr. Ólöf Margrét leiðir stundina og Jóhanna Elísa leikur á píanóið. Biblíusaga, söngur og bæn Innra-Hólmskirkja Kvöldmessa kl. 20 - sr. Ólöf Margrét þjónar, Kór Saurbæjarprestakalls syngur, [...]
Bingó í Opna húsinu miðvikudaginn 6. mars kl. 13:15
Opið hús í Vinaminni miðvikudaginn 6. mars kl. 13:15 Bingó! 500 kr. spjaldið. Kaffi og meðlæti, spjall og samvera að venju í lokin. Kyrrðarstund kl. 12:10 í Akraneskirkju og súpa á eftir, kr. 500. Verið velkomin!
Sunnudagur 25. febrúar
Velkomin til kirkju! Sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11 Söngur og biblíusaga. Börnin fá mynd dagsins. Kvöldmessa í Akraneskirkju kl. 20 Katrín Valdís Hjartardóttir syngur ásamt félögum úr Kór Akraneskirkju. Organisti Hilmar Örn, sr. Ólöf Margrét leiðir stundina og prédikar um nokkrar af konunum í Biblíunni í tilefni konudagsins.
Opið hús 21. febrúar – Sögustund með Þóru Gríms
Miðvikudaginn 21. febrúar er opið hús í Vinaminni kl. 13:15 Þóra Gríms, sagnakona, kemur í heimsókn og verður með sögustund eins og henni er lagið. Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 og súpa að stund lokinni í Vinaminni. Verið velkomin!
Fræðslukvöld í Akraneskirkju: Dæmisögur Jesú
Fræðslukvöld Garða- og Saurbæjarprestakalls halda áfram og að þessu sinni mun sr. Þráinn Haraldsson fjalla um dæmisögur Jesú og saman munum við skoða þessar sögur sem margar hverjar hafa haft mótandi áhrif á menningu okkar. Hverjar eru dæmisögurnar og afhverju sagði Jesú dæmisögur. Verið velkomin á fræðslukvöld í Akraneskirkju
Sunnudagur 18. febrúar
Fyrsti sunnudagur í föstu ,,Til þess birtist Guðs sonur, að hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins” 1. Jóh. 3.8,,Til þess birtist Guðs sonur, að hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins” 1. Jóh. 3.8 Nú er fastan hafin og litur þess tíma í kirkjunni er fjólublár, litur iðrunar og yfirbótar. Langafastan hefst með öskudegi og er hún fjörutíu dagar og lýkur á páskadag. Fastan minnir á þá fjörutíu daga er Jesús fastaði í eyðimörkinni og mætti sínum [...]