Home2023-01-05T21:45:34+00:00
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna
Vaktsími presta: 893-5900

Hallgrímskirkja í Saurbæ

Leirárkirkja
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Viðburðir framundan
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Allt helgihald framundan

Ýmislegt

Fréttasafn

Akraneskirkja sunnudaginn 22. október

Sunnudagaskóli kl. 11 með söng og gleði. Öll börn fá mynd dagsins. Ása Kolbrún leiðir stundina, Valgerður Jónsdóttir spilar undir söng. Verið velkomin! Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Kór Akraneskirkju syngur ljúfa kvöldsálma, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Sr. Ólöf Margrét þjónar, meðhjálpari Helga Sesselja. Verið velkomin til kirkju!

18. október, 2023|

Minningarstund á alþjóðlegum degi barnsmissis

15. október er alþjóðlegur dagur barnsmissis. Dagurinn er helgaður minningu þeirra barna sem létust í móðurkviði, í fæðingu eða eftir hana. Þennan dag er haldin minningarstund í Akraneskirkju kl. 18 í samstarfi við Englaforeldra sem er félagsskapur þeirra sem misst hafa ung börn á Akranesi. sr. Þráinn Haraldsson leiðir stundina, Katrín Valdís Hjartardóttir syngur og Hilmar Örn Agnarsson leikur á orgel. Á stundinni er minningu barnanna haldið á lofti, flutt er orð og tónlist [...]

13. október, 2023|

Opið hús 11. október kl. 13:15 – Erla Dís hjá Héraðsskjalasafninu

Miðvikudaginn 11. október er Opið hús í Vinaminni. Gestur okkar að þessu sinni er Erla Dís Sigurjónsdóttir hjá Héraðsskjalasafninu. Hún hefur frá ýmsu að segja af því sem er í vörslu safnsins, sem geymir ljósmyndir og skjöl ýmiskonar. Kaffi og meðlæti í lok samveru, kr. 500. Minnum á kyrrðarstund í Akraneskirkju alla miðvikudaga kl. 12:10. Hilmar Örn organisti leikur á orgel, prestur les ritningarorð og bæn. Gott að setjast niður og kyrra hugann, íhuga [...]

10. október, 2023|

Hátíðarmessa í Innra-Hólmskirkju 8. október kl. 14

Árið 1892 var Innra-Hólmskirkja í Hvalfjarðarsveit vígð og hefur hún þjónað sínum sóknarbörnum dyggilega í gegnum árin. Var hún farin að láta allverulega á sjá þegar hafist var handa við endurbætur á henni árið 2020 og nú er þeim að mestu lokið. Velunnarar kirkjunnar hafa styrkt verkefnið og hefur sóknarnefnd ásamt fleirum haft umsjón með framkvæmdunum, þá hefur húsafriðunarsjóður einnig styrkt framkvæmdirnar. Kirkjan verður formlega tekin í notkun að nýju eftur þessar endurbætur næstkomandi [...]

5. október, 2023|

Akraneskirkja sunnudaginn 8. október

Helgihald í Akraneskirkju sunnudaginn 8. október: Sunnudagaskóli kl. 11. Söngur, sögur og gleði. Börnin fá biblíumynd dagsins. Sr. Þóra Björg leiðir stundina. Kvöldmessa kl. 20. Taize-sálmar, ritningarlestur, hugleiðing og bæn. Sr. Ólöf Margrét þjónar. Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Meðhjálpari Fjóla Lúðvíksdóttir. Velkomin til kirkju!

5. október, 2023|

Karlakaffi í Vinaminni 4. október kl. 13:30

Gunnlaugur Guðmundsson, stjörnuspekingur, er gestur karlakaffis október mánaðar. Hann fjallar um afstöðu himintunglanna og áhrif þeirra ásamt öðrum skemmtilegum fróðleik. Fyrsta miðvikudag í mánuði að jafnaði er Karlakaffi, þar koma góðir gestir í heimsókn og segja frá starfi sínu, áhugamáli eða miðla öðrum fróðleik. Þetta er vettvangur fyrir herramennina að hittast þar sem er fræðsla og skemmtun og tækifæri til að spjalla. Kaffi og meðlæti kr. 500. Minnum einnig á kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10  [...]

2. október, 2023|

Sunnudagur 24. september

Velkomin til kirkju! Helgihald og safnaðarstarf prestakallsins er komið á fullt. Sunnudaginn 24. september verður messað á þremur stöðum, í Hvalfirði, Akraneskirkju og Hjúkrunarheimilinu Höfða. Hallgrímskirkja í Saurbæ Messa kl. 11. Sr. Kristján Valur Ingólfsson prédikar, sr. Ólöf Margrét þjónar fyrir altari. Kór Saurbæjarprestakalls syngur, organisti Zsuzsanna Budai. Meðhjálpari Ágústa Björg Kristjánsdóttir. Akraneskirkja Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Ásu Kolbrúnar og sr. Þráins. Söngur og sögur í skemmtilegri samveru. Kvöldmessa kl. 20. Sr. Þráinn [...]

20. september, 2023|

  Kór Keflavíkurkirkju ásamt hljómsveit flytur U2 Messu laugardaginn þann 16. september í Akraneskirkju kl. 14. Kórmeðlimir syngja einsöng og dúetta. Kórmeðlimir hafa auk þess samið nýja texta með trúlegu ívafi við lög U2. Arnór B. Vilbergsson kórstjóri og organisti í Keflavíkurkirkju hefur á sinn snilldarlega hátt útsett lögin og sér um stjórnun. Hljómsveit skipa: Arnór B. Vilbergsson hljómborð og munnharpa Sólmundur Friðriksson bassi Þorvaldur Halldórsson trommur Þorvarður Ólafsson gítar

14. september, 2023|

Sunnudagur 17. september

Sunnudaginn 17. september er sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11, þar verður söngur, sögur og gleði. Kvöldmessa í Akraneskirkju kl. 20 þar sem áhersla verður á Davíðssálma, taize sálmar sungnir ásamt kvöldsálmum. Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson, sr. Ólöf Margrét þjónar. Verið velkomin til kirkju!

14. september, 2023|

Opið hús í safnaðarheimilinu Vinaminni, miðvikudaginn 13. september kl. 13.15

Fyrsta opna hús haustsins verður í safnaðarheimilinu Vinaminni miðvikudaginn 13 september kl. 13.15. Sr. Ólöf Margrét sér um stundina. Hilmar Örn organisti og Steini í Dúmbó sjá um tónlistina. Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga góða stund saman Kaffi og meðlæti í lok samveru kr. 500.

11. september, 2023|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top