Home2024-12-10T15:20:05+00:00
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna
Vaktsími presta: 893-5900

Hallgrímskirkja í Saurbæ

Innra - Hólmskirkja

Leirárkirkja
Útfarir
Viðburðir framundan
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundanAllt helgihald framundan

Ýmislegt

Fréttasafn

Sunnudagur 10. maí: kvöldmessa í Akraneskirkju

„Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn minni á bug né tók frá mér miskunn sína.“ (Slm 66.20) Fimmti sunnudagur eftir páska nefnist hinn almenni bænadagur, forveri hans var kóngsbænadagur en í lok 19. aldar var hann lagður niður hér á landi, en í staðinn tekinn upp hinn almenni bænadagur til að þjóðin sameinist í bæn. Það gerum við í messu í Akraneskirkju sunnudaginn 10. maí sem er einnig mæðradagurinn. Kvöldmessa í Akraneskirkju sunnudaginn [...]

6. maí, 2026|

Aðalfundur Hollvinafélags Hallgrímskirkju í Saurbæ

Aðalfundur Hollvinafélags Hallgrímskirkju í Saurbæ mánudaginn 11. maí Fundurinn hefst með stuttum kvöldbænum kl. 18.oo í kirkjunni. Að loknum fundarstörfum verður boðið upp á létta hressingu. Félagar hvattir til að mæta. Allir eru velkomnir til að kynna sér starfsemi félagsins og nýir félagar auðvitað sérlega velkomnir.

6. maí, 2026|

Miðvikudagur 6. maí: Karlakaffi kl. 13:15 – Erla Dís Sigurjónsdóttir frá Héraðsskjalasafninu

Miðvikudagur 6. maí Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 - súpa í Vinaminni eftir stundina. Karlakaffi í Vinaminni kl. 13:15 Gestur okkar að þessu sinni er Erla Dís Sigurjónsdóttir hjá Héraðsskjalasafni Akraness. Hún hefur frá ýmsu að segja af því sem er í vörslu safnsins, sem geymir ljósmyndir og skjöl ýmis konar. Kaffi og meðlæti í lok samveru, kr. 1.000.

4. maí, 2026|

Opið hús 29. apríl: Vorferð – brottför kl. 12

Miðvikudaginn 29. apríl er komið að vorferð Opna hússins. Farið verður í Hvalfjörðinn fagra og í Kjósina. Brottför kl. 12 frá Akraneskirkju Stoppað á Bjarteyjarsandi þar sem Arnheiður Hjörleifsdóttir tekur á móti okkur með íslenskri kjötsúpu og segir frá ýmsu af söguslóðum Hvalfjarðar. Því næst er haldið af stað í Kjósina og stoppað á bænum Hjalla þar sem við fáum okkur kaffi og vöfflur. Við klárum svo þennan Hvalfjarðar- og Kjósarhring í síðasta lagi [...]

27. apríl, 2026|

Aðalsafnaðarfundur Leirársóknar 4. maí

Aðalsafnaðarfundur Leirársóknar verður haldinn í Leirárkirkju mánudaginn 4. maí kl. 20 Í upphafi fundar kynnir Sigursteinn Sigurðsson, arkitekt, fyrirhugaðar framkvæmdir við kirkjuna. Að því loknu taka við hefðbundin aðalsafnaðarstörf. Látið ykkur málefni kirkjunnar ykkar varða!

27. apríl, 2026|

Sumardagurinn fyrsti – skátamessa í Akraneskirkju kl. 11

Fögnum saman sumri á sumardaginn fyrsta í skrúðgöngu og messu Skrúðganga frá skátaheimilinu Háholti að kirkjunni leggur af stað klukkan 10:30 Messa með skátasöngvum og erindi frá skáta hefst kl. 11. Þau sem ekki treysta sér í gönguna að mæta beint í kirkjuna. Hvetjum alla gamla og nýja skáta til að mæta með fjölskyldu og vini

20. apríl, 2026|

Jesús Kristur Súpergoð – rokksöngleikur í Bíóhöllinni

Kór Akraneskirkju og Kór Keflavíkurkirkju flytja í sameiningu rokksöngleikinn Jesús Kristur Súpergoð – valin lög úr þessum heimsfræga söngleik í útsetningu Arnórs Vilbergssonar og íslenskri þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Upprunalega verkið er eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice. Tónleikarnir fara fram í Bíóhöllinni á Akranesi laugardaginn 18. apríl og hefjast kl. 17:00 og aukasýning klukkan 14 sama dag. Á sviði verður hátt í 100 manna kór, ásamt fjölda einsöngvara úr röðum kóranna og [...]

17. apríl, 2026|

11. og 12. apríl eru fermingardagar í Akraneskirkju

Fjórar fermingarathafnir verða um helgina í Akraneskirkju, þar sem fermd verða 45 ungmenni: Laugardaginn 11. apríl kl. 10.30 og kl. 13.30 Sunnudaginn 12. apríl kl. 10.30 og kl. 13.30 Fermingarbörn 11. apríl kl. 10:30 Alexandra María Ólafsdóttir Anna Rósa Ársælsdóttir Aron Bergmann Valtýsson Benedikt Frans Hafþórsson Brynja Líf Sölvadóttir Elektra Lind Káradóttir Emilía Ingibjörg Valmundsdóttir Halldóra Erla Þorvaldsdóttir Hilmar Erik Héðinsson Katrín Eir Jónsdóttir Nikulás Elí Halldórsson Sigurrós Amalía Nótt Ágústsdóttir Steinn Sindrason Viktoría [...]

10. apríl, 2026|

Karlakaffi 8. apríl: Létt spjall og gamanmál

Miðvikudagur 8. apríl Kyrrðarstund í Akraneskirkju kl. 12:10 - ljúf stund í miðri viku með orgelleik, ritningarlestri og bæn. Súpa í Vinaminni eftir stundina, kr. 1.000. Karlakaffi í Vinaminni kl. 13:15 - létt spjall og gamanmál ásamt kaffi og kökubita. Umsjón sr. Jón Ármann. Kr. 1.000.

7. apríl, 2026|

Helgihald í Garða- og Saurbæjarprestakalli á bænadögum og páskum

Akraneskirkja Skírdagur - helgistund kl. 20 þar sem lagt er á borð fyrir hina heilögu kvöldmáltíð. Í lok stundar er altarið afskrýtt og ljósin slökkt, gengið út í þögn. Sr Þóra Björg Sigurðardóttir þjónar fyrir altari, Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Meðhjálpari Helga Sesselja Ásgeirsdóttir. Föstudagurinn langi - helgistund við krossinn kl. 20. Sr Jón Ármann Gíslason les úr píslarsögunni. Konur úr Kammerkórnum Röst AK syngja, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Meðhjálpari Helga [...]

30. mars, 2026|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top