ÞÞ

ÞÞ2021-05-06T12:59:52+00:00
Loading...
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Ýmislegt

22. apríl, 2024 - 28. apríl, 2024

29. apríl, 2024 - 5. maí, 2024

Fréttasafn

Minningarstund á alþjóðadegi barnsmissis

15. október ár hvert er alþjóðlegur dagur barnsmissis, þar er minnst þeirra barna sem létust í móðurkviði, í og eða eftir fæðingu. Minningarstund verður haldin í Akraneskirkju laugardaginn 15. október kl. 20. Stundin er í samstarfi við Englaforeldra á Akranesi. Valgerður Jónsdóttir söngkona mun flytja tónlist, sr. Þráinn Haraldsson leiðir stundina. Kveikt verður á kertum í minningu barnanna. Eftir stundina verður farið að minningarreit látinna barna í Akraneskirkjugarði. Stundin er öllum opin og bjóðum [...]

12. október, 2022|

Hannyrðir og huggulegheit í opnu húsi miðvikudaginn 12. október kl. 13:15

Opið hús er í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15. Áhersla er á samveru og skemmtun, að fræðast og gleðjast saman. Dagskráin er sambland af tónlist, erindum frá góðum gestum og fræðslu og skemmtun að hætti hússins. Umsjón með starfinu hefur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Miðvikudaginn 12. október kíkja þær Vera Knútsdóttir í Litlu músinni og Sigurlína Júlíusdóttir hjá Gallerý Snotru í heimsókn. Þær segja frá versluninni, bróderíi, prjónaskap, fatasaum og fleiru og fleiru. [...]

11. október, 2022|

Sunnudagurinn 9. október

Sunnudaginn 9. október verður Bleikur sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 11. Þá má mæta í bleikum fötum eða með eitthvað bleikt með sér. Um kvöldið verður Kvöldmessa í Akraneskirkju kl. 20. Séra Þóra Björg þjónar fyrir altari, Kór Akraneskirkju leiðir söng og Hilmar Örn Agnarsson er organisti. Verið hjartanlega velkomin

5. október, 2022|

Söngur farfuglanna – Tónleikar á vegum Kalman Listafélags Akraness

Söngur farfuglanna er er yfirskrift fyrstu tónleika haustsins hjá Kalman listafélagi sem haldnir verða í Vinaminni nk. fimmtudagskvöld kl. 20. Fram kemur sérlega efnileg ung sópransöngkona Bryndís Guðjónsdóttir ásamt flautuleikaranum Pamela De Sensi og Guðríði St. Sigurðardóttur píanóleikara.  Þar flytja þær fágaða og spennandi efnisskrá fyrir sópran, flautu og píanó eftir 19. og 20. aldar tónskáld þar sem m.a. ástríðufullir hljómar eftir Ciardi, Donizetti, Alybyev og Rodrigo blandast saman við rómantíska og fágaða hljóma [...]

28. september, 2022|

Opið hús í Vinaminni 28. september kl. 13:15

Opið hús er í Vinaminni annan hvern miðvikudag kl. 13:15 Miðvikudaginn 28. september verður dagskrá að hætti hússins í umsjá sr. Ólafar. Hilmar organisti verður henni til halds og trausts og spilar tónlist í dúr fremur en moll. Leikir, gátur, ögn af fróðleik en einkum skemmtun. Láttu sjá þig. Kaffi og meðlæti í lok samveru.

26. september, 2022|

Sunnudagur 25. september

Varpið allri áhyggju ykkar á hann því að hann ber umhyggju fyrir ykkur (1Pét 5.7) Sunnudagur 25. september 2022 Leirárkirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Kór Saurbæjarprestakalls syngur. organisti Zsuzsanna Budai. Sr. Ólöf Margrét þjónar, meðhjálpari Kolbrún Sigurðardóttir. Akraneskirkja: Sunnudagaskóli kl. 11 Messa kl. 20 Kór Akraneskirkju syngur, organisti Hilmar Örn Agnarsson. Prestur Ólöf Margrét, meðhjálpari Fjóla Lúðvíksdóttir. Verið velkomin til kirkju!  

20. september, 2022|

Kammerkór Seltjarnarneskirkju heldur tónleika í Vinaminni

Laugardaginn 17.  september kl. 15.  mun Kammerkór Seltjarnarneskirkju halda hausttónleika í safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi. Flutt verða íslensk og erlend lög frá ýmsum tímabilum m.a. eftir Thomas Tallis, Felix Mendelssohn, Eric Whitacre, Pärt Uusberg, Sigurð Sævarsson, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, Huga Guðmundsson og fleiri. Kór Akraneskirkju kemur einnig fram á tónleikunum. Stjórnandi Friðrik Vignir Stefánsson Meðleikur á píanó Hilmar Örn Agnarsson Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

14. september, 2022|

Opið hús í Vinaminni miðvikudaginn 14. september

Miðvikudagur 14. september 2022 Söngur og sögur verða í fyrsta opna húsinu, Sigursteinn Hákonarson, Steini í Dúmbó, kemur og slær á létta strengi ásamt Hilmari organista. Umsjón hefur sr. Ólöf Margrét. Verið velkomin! Opið hús í Vinaminni kl. 13-15 annan hvern miðvikudag frá 14. september. Skemmtun og fróðleikur, söngur og gleði. Kaffi í lok hverrar samveru. Minnum einnig á bænastund í Akraneskirkju alla miðvikudaga kl. 12:10. Súpa í Vinaminni á eftir.

13. september, 2022|

Forvarnardagur sjálfsvíga – minningastund

Minningastund í Akraneskirkju kl. 20 Laugardaginn 10. september   10. september er alþjóðlegur forvarnardagur gegn sjálfsvígum. Hér á landi er dagurinn einnig helgaður minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi og eru minningar- og kyrrðarstundir haldnar um land allt. Á minningastund í Akraneskirkju deilir Mjöll Barkardóttir aðstandandi reynslu sinni, Hilmar Örn Agnarsson organisti leikur ljúfa tóna. Kveikt á kertum í minningu látinna ástvina. Hugleiðing og bæn. Prestar kirkjunnar leiða stundina.   Kaffi og [...]

5. september, 2022|

Sunnudagur 4. september

Guðsþjónusta á hlaði Innra-Hólmskirkju sunnudaginn 4. september kl. 11 Nú stendur yfir viðgerð á kirkjunni en við komum saman við kirkjuna og fögnum hausti og þökkum fyrir sumarið. Kór Saurbæjarprestakalls leiðir söng, organisti Zsuzsanna Budai. Prestur Ólöf Margrét Snorradóttir. Kaffisopi eftir stundina. Klæðum okkur eftir veðri og eigum góða samveru úti í náttúrunni! Verið velkomin! Akraneskirkja: Taizé-messa kl. 20 Taizé-messa á uppruna sinn að rekja til bæjarins Taizé í Suður-Frakklandi og byggist hún upp [...]

1. september, 2022|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top