Home2023-01-05T21:45:34+00:00
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna
Vaktsími presta: 893-5900

Hallgrímskirkja í Saurbæ

Leirárkirkja
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Viðburðir framundan
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Allt helgihald framundan

Ýmislegt

Fréttasafn

Fermingar 3. apríl

Þann 3. apríl næstkomandi verða 2 fermingarathafnir í Akraneskirkju. Sú fyrri kl. 10.30 og síðari kl. 13.30. Þau sem fermd verða kl. 10.30 eru: Aldís María Smáradóttir Arnar Már Garðarsson Benedikt Víkingur Rúnarsson Bjarki Berg Reynisson Elísabet Fróðný Eiríksdóttir Elsa Fanney Gunnarsdóttir Gestur Ólafur Elíasson Guðmundur Hrafnkell Daðason Hafdís María Arnórsdóttir Jökull Viktor Jakobsson Natalía Björg D Binkowska Sesar Óli Guðrúnarson Sveinn Þór Elinbergsson Þau sem fermd verða kl. 13.30 eru: Anna Málfríður Ottesen [...]

1. apríl, 2022|

Opin kóræfing hjá Kór Akraneskirkju 29. mars

Þriðjudaginn 29. mars verður opin æfing hjá Kór Akraneskirkju. Allir áhugasamir velkomnir, sérstaklega þeir sem hafa áhuga á að ganga til liðs við kórinn. Æfingin er í Safnaðarheimilinu Vinaminni kl. 19:30 og stendur til 21:30. Organisti og kórstjóri er Hilmar Örn Agnarsson. Kaffi, konfekt, fræðsla um kórstarfið og skemmtileg tónlist í boði! Kór Akraneskirkju syngur við flestar athafnir kirkjunnar auk þess að standa fyrir tónleikum og öðrum viðburðum. Kórstarfið er skemmtilegt og gefandi félagsstarf [...]

28. mars, 2022|

Aðalsafnaðarfundur

Aðalsafnaðarfundur Akraneskóknar verður haldinn mánudaginn 4. apríl klukkan 18. í  Safnaðarheimilinu Vinaminni.   Dagskrá:   Venjuleg aðalfundarstörf   Önnur mál   Sóknarnefnd Garðaprestakalls

24. mars, 2022|

Föstumessur í Hallgrímskirkju í Saurbæ miðvikudaga kl. 20

Á föstunni, frá öskudegi að páskum, er messað í Hallgrímskirkju í Saurbæ alla miðvikudaga kl. 20. Lesið er úr Píslarsögunni og sungnir Passíusálmar Hallgríms ásamt því að neyta altarissakramentisins. Sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup emeritus, leiðir stundirnar ásamt prestum Garða- og Saurbæjarprestakalls.   Verið velkomin til föstumessu.

22. mars, 2022|

Bænastund og Karlakaffi á miðvikudaginn 16. mars.

Bænastund og Karlakaffi á miðvikudaginn 16. mars. Það verður bænastund klukkan 12.15 eins og venjulega á miðvikudögum í Akraneskirkju og súpa á eftir í Vinaminni. Verið velkomin Klukkan 13.30 er Karlakaffið okkar, gestur í kaffinu verður Ólafur Adolfsson. Hann kemur og segir meðal annars frá starfsemi Þróunarfélags Grundartanga og hvað verður á döfinni hjá félaginu næstu missiri. Verið velkomin

14. mars, 2022|

Æskulýðsmessa og búningadagur í sunnudagaskólanum

Sunnudagurinn 6. mars verður tileinkaður unga fólkinu í kirkjunna þar sem þetta er æskulýðsdagurinn. Það verður búningadagur í sunnudagaskólanum kl. 10 í Akraneskirkju og síðan verður æskulýðsmessa í Vinaminni kl. 11 þar sem starfsfólkið mun meðal annars sýna fermingarmyndirnar af sér og tala um sína upplifun af fermingardeginum. Jóhanna Elísa Skúladóttir verður með söngatriði. Sjáumst! https://www.facebook.com/events/1099007413976746

4. mars, 2022|

Fjórtán hjónavígslur í Akraneskirkju

Þriðjudaginn 22. febrúar sl. var mikið um að vera í Akraneskirkju þegar fjórtán hjónavígslur fóru fram. Tilefnið var svokallað ,,drop in‘‘ brúðkaup sem boðið var upp á í tilefni þessarar skemmtilegu dagsetningar, 22.02.2022. Drop in brúðkaup er hjónavígsla án mikils tilstands eða undirbúnings, athöfnin er einföld með stuttri hugleiðingu, ritningarlestri, bæn og blessun. En þrátt fyrir einfaldleikann voru athafnirnar hátíðlegar og einlægar, rammaðar inn með forspili og eftirspili organista. Að athöfn lokinni fóru hjónin [...]

25. febrúar, 2022|

Konudagsmessa í Akraneskirkju kl.20

Konudagsmessa verður í Akraneskirkju sunnudaginn 20.febrúar kl. 20. Ingibjörg Pálmadóttir verður með hugvekju og Guðrún Gunnarsdóttir söngkona syngur. Séra Ólöf Margrét og séra Þóra Björg þjóna. Félagar úr Kór Akraneskirkju syngja, Hilmar Örn Agnarsson organisti leikur undir ásamt hljómsveit.

20. febrúar, 2022|

Kirkjustarf hefst á nýjan leik

Nú þegar létt hefur verið á sóttvarnartakmörkunum hefjum við hefðbundin kirkjustarf á nýjan leik. Alla sunnudaga er sunnudagaskóli í Akraneskirkju kl. 10 og guðþjónsta kl. 11 en síðasta sunnudag í mánuði er messa kl. 20. Messað er reglulega í Hallgrímskirkju í Saurbæ, Leirárkirkju og Innra-Hólmskirkju og er það auglýst sérstaklega. Á mánudögum fer fram barna og æskulýðsstarf Akraneskirkju. 6-9 ára starf kl. 15, 10-12 ára starf kl. 17 og æskulýðsfélag kl. 20. Alla miðvikudaga [...]

1. febrúar, 2022|

Barna- og unglingastarfið hefst 31. janúar

Loksins, loksins hefst barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar á ný mánudaginn 31. janúar. 6-9 ára starfið er á mánudögum kl. 15-16. 10-12 ára starfið er á mánudögum kl. 17-18. Æskulýðsfélagið (8.-10.bekkur) er á mánudögum kl. 20.00-21.30. Dagskrárnar má nálagst hér á heimasíðu kirkjunnar og við hvetjum ykkur eindregið til að skrá börnin í starfið.

27. janúar, 2022|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top