Home2023-01-05T21:45:34+00:00
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna
Vaktsími presta: 893-5900

Hallgrímskirkja í Saurbæ

Leirárkirkja
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Viðburðir framundan
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Ýmislegt

Fréttasafn

3. bekkingar una sér vel í gamla Iðnskólanum

Skólahúsið sem gjarnan er kallað gamli Iðnskólinn var byggt 1912. Fyrst um sinn var húsnæðið nýtt undir barnaskóla, síðan gagnfræðaskóla, þá iðnskóla og svo aftur barnaskóla. Nú hefur húsið ekki verið notað sem skólahúsnæði um árabil. Gamli Iðnskólinn hefur síðustu ár verið vel nýttur fyrir kirkjuna. En þar fer fram allt barna- og æskulýðsstarf, fermingarfræðsla, ævintýranámskeið, listnámskeið og þangað er athöfnum einnig streymt af og til. Nú þegar verið er að laga húsnæði Brekkubæjarskóla [...]

21. janúar, 2022|

Nýjar takmarkanir

  Á miðnætti taka gildi nýjar sóttvarnartakmarkanir. Þær munu hafa mikill áhrif á starfsemi kirkjunnar. Allt venjubundið starf kirkjunnar fellur niður þar til 2. febrúar. Þetta á við um guðsþjónustur, bænastundir, barna og æskulýðsstarf, fermingarfræðsla, eldri borgara starf og karlakaffi. Takmarkanir við skírnir og brúðkaup eru 10 manns en 50 manns mega koma saman við útfarir.   Safnaðarheimilið er áfram opið og við minnum á viðtalstíma prestanna. Bæði er hægt að koma í viðtöl [...]

14. janúar, 2022|

Allt helgihald fellur niður 16. janúar

Biskup Íslands hefur mælst til þess að fólk verði ekki kallað til helgihalds um helgina vegna neyðarstigs sem almannavarnir hafa lýst yfir. Við aflýsum því áður auglýstu helgihaldi. Við minnum á að skrifstofurnar okkar eru opnar á virkum dögum og prestarnir eru ávallt til viðtals. Upplýsingar um netföng og símanúmer má finna hér á heimasíðunni. Nánari upplýsingar um helgihald næstu vikur mun birtast hér á síðunni eftir helgi. Hlýjar kveðjur, Starfsfólk Garða- og Saurbæjarprestakalls

12. janúar, 2022|

Kirkjustarfið næstu vikurnar

  Enn á ný hafa samkomutakmarkanir sett mark sitt á starfið í kirkjunum okkar. Öllu helgihaldi var aflýst yfir jól og áramót og einnig sunnudaginn 9. janúar. Samkvæmt núgildandi takmörkunum mega 50 manns koma saman við sitjandi athafnir í kirkjunni. Við munum því byrja almennt helgihald sunnudaginn 16. janúar, þá í Akraneskirkju kl. 11. Bænastundir hefjast miðvikudaginn 12. janúar kl. 12.15 í Akraneskirkju, en ekki verður boðið upp á súpu eftir stundina eins og [...]

9. janúar, 2022|

Streymi frá útför Ingibjargar Eggertsdóttur

Upptaka frá útför Ingibjargar Eggertsdóttur verður aðgengileg á vef Akraneskirkju seinni partinn í dag, föstudaginn 7 janúar.   Aðilinn sem sá um streymið í gegnum síðu Akraneskirkju var í tæknilegum örðugleikum, en hann ætlar að setja upptöku frá athöninni inn seinna í dag og þá vonum við að hægt verði að horfa á athöfnina.

7. janúar, 2022|

Öllu helgihaldi aflýst um jól og áramót

Í ljósi aðstæðna og nýrra takmarkana sem tekið hafa gildi hefur verið tekin sú ákvörðun að aflýsa öllu helgihaldi um jól og áramót. Þetta er þungbært en það sem við töldum skynsamlegast. Við viljum minna á að prestar prestakallsins eru til viðtals yfir hátíðarnar. Það mun koma jólakveðja frá prestunum á morgun Þorláksmessu og einnig á milli jóla og nýárs.   Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól.

22. desember, 2021|

Helgihald um jól og áramót

Það líður að jólum þrátt fyrir að margt sé óvenjulegt og enn séu í gildi sóttvarnartakmarkanir. Í kirkjum Garða- og Saurbæjarprestkalls mun fara fram fjölbreytt helgihald um jólin. Í stærstu messunum á aðfangadag og jóladag verður kirkjunni skipt í sóttvarnarhólf og með því móti er hægt að taka á móti fleiri gestum en 50. Við biðjum alla að fylgja fyrirmælum starfsfólks þegar komið er til kirkju og eins þegar gengið er út. Sunnudaginn 19. [...]

17. desember, 2021|

Tónleikar Kórs Akraneskirkju

Fimmtudaginn 16. desember kl. 20:00 mun Kór Akraneskirkju fagna komu jólanna með jólatónleikum í Vinaminni. Lagaval tónleikanna er fjölbreytt og skemmtilegt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Forsala á tónleikana er hafin í versluninni Bjargi. Lausir miðar verða seldir við innganginn. Miðaverð er 4.ooo kr. Takamarkaður sætafjöldi. Tekið skal fram að fylgt verður ítrustu sóttvarnarreglum sem gilda á tónleika degi Hraðpróf: Vegna núgildandi sóttvarnartakmarkanna verða allir tónleikagestir að framvísa neikvæðri niðurstöðu [...]

9. desember, 2021|

Diddú og drengirnir með aðventutólneika í Hallgrímskirkju

Diddú og drengirnir flytja dásamlega aðventutónlist í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 5. desember kl. 16:00-17:30. Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt blásarasextett hefur um árabil glatt tónlistarunnendur með tónlistarflutningi á aðventu. Kór Saurbæjarprestakalls undir stjórn Zsuszönnu Budai syngur með í tveimur perlum; Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns og Panis Angelicus eftir Cesar Franck. Aðgangseyrir er kr. 3000.- Tónleikanefndin óskar eftir að gestir framvísi neikvæðu covid-hraðprófi.

1. desember, 2021|

Jólatónleikar Kórs Akraneskirkju

Fimmtudaginn 16. desember kl. 20:00 mun Kór Akraneskirkju fagna komu jólanna með jólatónleikum í Vinaminni. Lagaval tónleikanna er fjölbreytt og skemmtilegt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Forsala á tónleikana verður í versluninni Bjargi og hefst hún 5. desember. Lausir miðar verða seldir við innganginn. Miðaverð er 4.ooo kr. Tekið skal fram að fylgd verður ítrustu sóttvarnarreglum sem í gildi verða á þeim tíma.

27. nóvember, 2021|

Jólamarkaður til styrktar Innra-Hólmskirkju

Jólamarkaður til styrktar Innra-Hólmskirkju verður haldinn í Miðgarði  í Hvalfjarðarsveit laugardaginn 27.  nóvember og sunnudaginn 28.  nóvember frá kl . 13 til 17  báða dagana. á markaðinum verður ýmiskonar handverk, sultur, kleinur, broddur, kæfa og kökur.  Einnig verður vöfflu og kaffisala á staðnum. Við virðum sóttvarnarreglur og erum því með fjöldatakmarkanir og grímuskyldu. Hlökkum til að sjá ykkur. Nefndin. Ath. það er ekki posi á staðnum

26. nóvember, 2021|

Ljós á leiði í Akraneskirkjugarði

Ljós á leiði verða afgreidd í Kirkjugarði Akraness sem hér segir laugardaginn 27 nóvember frá klukkan 11 til 15.30 sunnudaginn 28. nóvember frá klukkan 13 til 15.30 laugardaginn 4. desember frá klukkan 13 til 15.30 Athugið !  Afgreiðslan er í vinnuskúrnum í kirkjugarðinum Verð kr. 8,000 Munum eftir grímunum  Nánari upplýsingar veita Valdimar Þorvaldsson í síma 899 9755 eða netfang: valdith@aknet.is og Ólafur Gr. Ólafsson í síma 844 2362 netfang: oligretar@aknet.is Lionsklúbbur Akraness

22. nóvember, 2021|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top