Home2023-01-05T21:45:34+00:00
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna
Vaktsími presta: 893-5900

Hallgrímskirkja í Saurbæ

Leirárkirkja
Útfarir
Helgistundir
Hjónavígslur
Viðburðir framundan
Skírnir

Vaktsími presta: 893-5900

Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.

Helgihald

Engir viðburðir framundanAllt helgihald framundan

Ýmislegt

Engir viðburðir framundan

Fréttasafn

Hertar samkomutakmarkanir

Á miðnætti tóku gildi hertar samkomutakmarkanir. Samkvæmt tilmælum frá Biskupi Íslands hefur öllu helgihaldi í Garða – og Saurbæjarprestakalli verið aflýst meðan hertar samkomutakmarkanir eru í gildi. Opnu húsi fyrir eldri borgara hefur einnig verið aflýst. Meðan á þessu stendur munu prestar prestakallsins og organisti birta hugvekjur og tónlist á facebook síðu Akraneskirkju alla sunnudaga. Einnig verður streymt frá bænastundum á miðvikudögum. Barna og unglingastarf KFUM og KFUK og Akraneskirkju mun halda áfram eins [...]

5. október, 2020|

Fjölskyldumessa sunnudaginn 4. október

Sunnudaginn 4. október verður fjölskyldumessa í Akraneskirkju. Séra Þóra Björg Sigurðardóttir hefur umsjón með messunni og Jóhanna Elísa Skúladóttir leikur undir á píanó. Syngjum saman, heyrum sögu og förum í leik. Verið hjartanlega velkomin!

1. október, 2020|

Opið hús fyrir eldri borgara í Vinaminni

Opið hús í Vinaminni miðvikudaginn 30. september kl: 13.30.Umsjón með stundinni hefur sr. Jónína Ólafsdóttir. Þann 30. september ætlum við að grafa upp bingóspjöldin í Vinaminni og rifja upp gamla bingótakta. Pétur Jóhannesson stjórnar af sinni alkunnu snilld.Að bingói loknu brestum við í söng og njótum svo spjalls og samveru yfir kaffiveitingum.Stundin hefst klukkan 13.30.Gætt verður að fjarlægðartakmörkum og spritt og grímur eru á staðnum fyrir þá sem það kjósa.Vonumst til að sjá ykkur [...]

29. september, 2020|

Orgelhreinsun í Akraneskirkju

Þann 20. apríl síðstliðinn, hófu þau Björgvin Tómasson orgelsmiður og Margrét Erlingsdóttir störf við að hreinsa orgel Akraneskirkju. Var þetta viðamikið verk enda þurfti að taka hverja einustu pípu úr orgelinu og hreinsa hana hátt og lágt. Orgel Akraneskirkju er frá 1988 og smíðað af Bruno Christensen & Sønner. Það telur 32 raddir og því má áætla að þau Margrét og Björgvin hafi handleikið hátt í tvö þúsund pípur við sína vinnu. Mikilvægt er [...]

26. september, 2020|

Nýr hluti við Kirkjugarð Akraness

Undanfarin ár hefur verið unnið að stækkun kirkjugarðsins á Akranesi. Nú er verkinu lokið og garðurinn tilbúin til grafartöku. Nýji hlutinn verður vígður við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 23. september kl. 18. Sr. Þráinn Haraldsson sóknarprestur leiðir athöfnina, Sveinn Arnar Sæmundsson leiðir söng. Allir eru velkomnir í vígsluna. Við athöfnina mun verða hringt klukkunum í klukkuturninum í kirkjugarðinum en þær hafa ekki hljómað í mörg ár. Það er sannarlega hátíðarstund þegar nýr hluti kirkjugarðsins [...]

22. september, 2020|

Opið hús, miðvikudaginn 16. september

Fyrsta Opna hús fyrir eldri borgara verður í Vinaminni, miðvikudaginn 13. september kl. 13.30

15. september, 2020|

Barna- og unglingastarfið hefst þriðjudaginn 15. september

Barna- og unglingastarf Akraneskirkju og KFUM&KFUK hefst þriðjudaginn 15. september.

14. september, 2020|

Valdís og Petrea

Meðal fyrstu organleikara við Akraneskirkju, voru þær Valdís Böðvarsdóttir og Petrea Sveinsdóttir. Í tímaritinu Hljómlistin þann 1. febrúar 1913 kemur fram, að Valdís hafi starfað sem organleikari í hálft ár árið 1903 og síðan aftur árið 1905. Hún kemur síðan enn að starfinu árið 1909 og saman eru þær Petrea við stýrið á árunum 1910-1912. Petrea var síðan organleikari til ársins 1922. Hún var einnig fyrsti stjórnandi Karlakórsins Svana árið 1915 og stjórnaði honum [...]

9. september, 2020|
Hlaða fleiri fréttum
Go to Top