Vaktsími presta: 893-5900
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Ýmislegt
Fréttasafn
Raggi Bjarna skemmtir í safnaðarheimilinu
Ragnar Bjarnason Annan fimmtudag í hverjum mánuði yfir vetrartímann er opið hús fyrir eldri borgara í Safnaðarheimilinu Vinaminni – frá kl. 13.30 til 16. Þessar samkomur hafa verið afar vel sóttar fram að þessu, svo að ekki sé meira sagt! Í fyrravetur komu yfir 100 manns hverju sinni. Fyrst er spiluð félagsvist eða bingó, síðan gert kaffihlé, þá flutt hugvekja og bæn, og eftir það er létt dagskrá í tali og [...]
Akraneskirkja opnar heimasíðu
Akraneskirkja Akraneskirkja hefur opnað heimasíðu. Það var gert með viðhöfn í Safnaðarheimilinu Vinaminni eftir guðsþjónustu 1. október sl. Heiðurskonan, Ragnheiður Guðbjartsdóttir, fyrrum formaður sóknarnefndar og starfsmaður kirkjunnar um árabil, ýtti á hnapp til að varpa síðunni út á veraldarvefinn. Táknrænt var að fá Ragnheiði til að gera þetta. Hún er komin hátt á níræðisaldur og er af kynslóð sem ekki ólst upp við tölvur. Hún afhenti síðan formanni sóknarnefndar, Þjóðbirni Hannessyni, vefsíðuna til [...]
110 ára vígsluafmæli kirkjunnar
Þess var minnst í hátíðarguðsþjónustu 20. ágúst sl. að 110 ár eru liðin frá því að Akraneskirkja var vígð. Hún var vígð 23. ágúst 1896. Vígslubiskupinn í Skálholti, hr. Sigurður Sigurðarson, prédikaði. Sóknarprestur og sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur Borgfirðinga, þjónuðu fyrir altari. Sóknarnefndarfólk tók þátt í athöfninni og Kirkjukór Akraness söng. Að guðsþjónustu lokinni var kirkjugestum boðið til kaffisamsætis í Safnaðarheimilinu Vinaminni. Þar voru kirkjunni afhentar veglegar gjafir frá Akraneskaupstað og Kirkjunefnd kvenna [...]