Vaktsími presta: 893-5900
Vaktsíminn einungis ætlaður brýnum málum sem ekki þola bið fram að viðtalstíma prestanna.
Ýmislegt
Fréttasafn
Sjómannadagurinn 6. júní
Sunnudaginn 6. júní er sjómannadagurinn. Blómsveigur verður lagður að minnisvarða um horfna sjómenn í Kirkjugarði Akraness kl. 10. Guðsþjónusta í Akraneskirkju kl. 11. Að henni lokinni verður haldið á Akratorg og blómsveigur lagður að minnismerki sjómanna. Verið hjartanlega velkomin.
Sláttur er hafinn í kirkjugarðinum á Akranesi
Með hækkandi sól byrjar gróðurinn að lifna við og Jón Guðmundsson mætir með unga fólkið sitt til að slá og hreinsa í kirkjugarðinum. Í vor keypti kirkjugarðurinn rafmagnsorf en þau eru hljóðlát og þægileg í notkun. Auk þess ganga þau fyrir hleðslurafhlöðum og eru því mun umhverfisvænni en bensínorfin sem hafa verið notuð um árabil. Þá er búið að hleypa vatni á vatnshanana og garðkönnurnar eru komnar á sinn stað. Kirkjugarðurinn verður því fagur [...]
Fermingar 22. og 23. maí
Fermingar verða í Akraneskirkju um komandi helgi. Laugardaginn 22. maí fermast: Elísa Nótt Ingadóttir Guðný Óladóttir Marta María Baldursdóttir Ólafur Isaac Baldursson Telma Rut Birgisdóttir Sunnudaginn 23. maí fermast: Arna Karen Gísladóttir Kristían Mar Kjaran Kristinn Daði Lúðvíksson Lilja Petrea Líndal Aradóttir Logi Daðason Tindri Steinn Volden Tómas Freyr Garðarsson
Útvarpsmessa á Rás 1
Sunnudaginn 16.maí verður útvarpsguðsþjónusta frá Akraneskirkju á rás 1 kl. 11:00. Búið er að taka upp guðsþjónustuna og verður hún því ekki í rauntíma í kirkjunni.
Skráning í fermingarfræðslu
Í dag, 10.maí, hefst skráning í fermingarfræðslu og val á fermingardögum fyrir vorið 2022. Hér til vinstri á síðunni er flipi sem kallast ,,skráningar" og þar undir er ,,fermingarfræðsla". Þar eru fermingarbörnin skráð. Hér fyrir neðan er hægt að skoða bæklinginn. fermingarbæklingur 2021 - lokaútgáfa Garda-og saurbaejar
Hlaupamessa í Akraneskirkju 9.maí
Lagt verður af stað frá Akraneskirkju kl. 11. Hlaupinn verður 5 km hringur um Akranes og endað í Vinaminni. Gulla Sverris og hlaupafélagar leiða hlaupið. Við vinaminni verður helgistund þar sem félagar úr Kór Akraneskirkju leiða söng og að lokum er boðið upp á hressingu. Öll þau sem vilja taka þátt en treysta sér ekki í hlaupið eru hjartanlega velkomin í Vinaminni upp úr kl. 11.30. Sjáumst!
Aðalsafnaðarfundur 2021
Aðalsafnaðarfundur Akranessóknar verður haldin mánudaginn 26. apríl kl. 17.30. Vegna samkomutakmarkanna verður safnaðarsal Vinaminnis skipt í tvö sóttvarnarhólf, hægt er að ganga inn í safnaðarheimilið bæði að framanverður og að aftanverður og er þá gengið inn í sitthvort hólfið. Starfsfólk tekur á móti gestum og vísar fólki í rétt hólf. Ekki verður boðið upp á veitingar líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Atkvæðisrétt hafa allir íbúar í Akranessókn sem skráðir eru í Þjóðkirkjuna. [...]
Fólkið í kirkjunni: Engin uppgjöf
Mörg sem hafa vakandi auga með kirkju og kristni og hugsa um kirkjuhúsin, hafa ekki hátt um það en varðstaða þeirra er ómetanleg. Ragnheiður Guðmundsdóttir er kirkjukona. Hógvær kona og yfir henni er rósemd og öryggi. Kona sem lætur ekki margt koma sér úr jafnvægi. Bjartsýn kona en þó raunsæ.
Upprisan – endurgerð altaristöflu Akraneskirkju
Vinna Bjarna Skúla Ketilssonar (Baska) við endurgerðina á altaristöflu Akraneskirkju.
Helgistund á páskadag
Prestar: Þóra Björg Sigurðardóttir og Þráinn Haraldsson Organisti: Sveinn Arnar Sæmundsson Einsöngur: Ásta Marý Stefánsdóttir https://youtu.be/5I7dBVx6wWw
Myndlistarsýning í Hallgrímskirkju í Saurbæ – Hinar fjórtán stöðvar krossferilsins
Hinar fjórtan stöðvar krossferilsins í myndum Önnu G Torfadóttur eru á sýningu í Hallgrímskirkju í Saurbæ ásamt kross- og upprisumyndum Gunnars J. Straumland. Fjórtán krossferilsmyndir í einni samræmdri myndröð eru með elstu viðfangsefnum kirkjulistarinnar. Slíkar myndaraðir gefur að líta í nær öllum rómversk-kaþólskum kirkjum og kapellum í margskonar útfærslum. Sameiginlegt með þeim öllum er að þær sýna í raunsæismyndum eða með táknmáli áfangastaði og atvik á píslargöngu Krists. Þessi myndaröð Önnu er unnin í [...]